Stafræn gögn og vélvædd gagnavarsla
|
Oft, þegar fjallað er um upplýsingatækni, er létt skautað yfir langtímavörslu upplýsinga, stöðugleika þeirra og skjalavörslu, eignarhald á þeim, og í beinum tengslum við það ábyrgð og aðgengi til langframa. Frá sjónarhorni skjalavarða sem hafa stöðugleika, öryggi og áreiðanleika að leiðarljósi með réttinn til skjala í huga hlýtur þetta að teljast ískyggilegt. Efasemdarraddir um vélræna samtengingu upplýsinga og persónunjósnir heyrast einnig sjaldan í tengslum við þetta sem vekur einnig áhyggjur meðal þeirra sem vilja vernda borgaraleg réttindi og réttinn til einkalífs og persónuöryggis. Kjarni málsins er að stafrænt form er afskaplega hentugt og skilvirkt til allrar vinnslu og meðferðar, en afleitt til vörslu og vottunar.
Hér eru nokkrir tenglar til vefja stjórnvalda, áhugamanna og hagsmunaaðila er snúast um rafrænar upplýsingar, meðferð þeirra og vottun.
Auk þess eru hér tenglar til vefja sem fjalla um tilraunir til að varðveita gögn á rafrænu formi til langframa. Tíminn einn mun leiða í ljós hvað út úr þeim tilraunum kemur, en umtalsverðir fjármunir hafa verið lagðir í þetta og bæði miklir almannahagsmunir og miklir sérhagsmunir í húfi.
|
|








