Norrænn skjaladagur 2009
Síðast uppfært: Mánudagur, 01. febrúar 2010 10:37 Fimmtudagur, 19. nóvember 2009 23:21
Þjóðskjalasafn Íslands, Borgarskjalasafn Reykjavíkur og Héraðsskjalasafn Kópavogs héldu sameiginlega upp á daginn í húsnæði Þjóðskjalasafnsins að Laugavegi 162. Kvenfélagasamband Íslands tók einnig þátt í deginum á Þjóðskjalasafninu sem að þessu sinni var helgaður konum og kvenfélögum.

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Svanhildur Bogadóttir borgarskjalavörður, Hrafn Sveinbjarnarson héraðsskjalavörður Kópavogs og Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður í Þjóðskjalasafni Íslands á Norrænum skjaladegi 14. nóvember 2009.
Skjalasöfnin voru fjölsótt og tókst dagurinn með ágætum. Héraðsskjalasöfnin á Egilsstöðum, Höfn í Hornafirði, Vestmannaeyjum, Akranesi, Borgarnesi, Ísafirði og Akureyri höfðu opið hús á deginum. Sýningar í tilefni dagsins og í framhaldi af honum eru haldnar í nokkrum héraðsskjalasafnanna, sjá dagskrá skjaladagsins.
HS








