Borði

Skjalasöfn kvenfélaga og félaga kvenna

Hinn 15. apríl hófst sameiginlegt átak Kvenfélagasambands Íslands og Félags héraðskjalavarða á Íslandi um söfnun og varðveislu skjalasafna kvenfélaga á landinu og annarra félaga kvenna.

Kvenfélög á Íslandi eiga sér langa og merka sögu. Yfir 200 félög eiga nú aðild að Kvenfélagasambandi Íslands en einnig eru mörg félög k venna sem standa utan þess. Allt frá því fyrsta kvenfélagið var stofnað árið 1869 hafa þau unnið mikið starf landi og þjóð til velfarnaðar og heilla.

Mikilvægt er að starf og saga kvenfélaga falli ekki í gleymsku. Saga þeirra er varðveitt í skjölum sem oft eru geymd við misjafnar aðstæður og á ýmsum stöðum.

jomfruinfrajupiter1958_1

jomfruinfrajupiter1958_2

Myndirnar eru teknar í tíu ára afmælishófi Kvenfélags Selfoss árið 1958 en þar var flutt atómrevían Jómfrúin frá Júpíter þar sem skyggnst var inn í framtíðina árið 1980. Myndirnar og handrit að revíunni er varðveitt í Héraðsskjalasafni Árnesinga.

Hvatt er til þess að félögin afhendi þau skjöl sín sem ekki eru lengur í daglegri notkun til næsta héraðskjalasafns. Markmiðið með átakinu er að heimildir um kvenfélögin og þá margþættu starfsemi varðveitist á öruggum stað og verði aðgengileg áhugasömum um ókomin ár. Á skjalasöfnunum hafa einnig fleiri tækifæri til að skoða skjölin og styðjast við sögu félaganna.

Starfsmenn héraðsskjalasafna geta veitt kvenfélögum ráðgjöf og aðstoð við skráningu, frágang og afhendingu skjalanna. Skjalasöfn samanstanda t.d. af fundagerðarbókum, bréfasöfnum, ljósmyndum, félagatölum, basarbókum, kynningarefni og e.t.v. fleiru. Gögn á rafrænu formi eins og félagatöl í Excel eða tölvupósta þarf að prenta út til afhendingar.

Kvenfélög á svæðum þar sem héraðsskjalasöfn starfa geta snúið sér til þeirra. Kvenfélög utan þeirra svæða geta t.d. snúið sér til héraðsskjalasafns í nágrannabyggð, Þjóðskjalasafns Íslands í Reykjavík eða Kvennasögusafns Íslands í Reykjavík.

Umfjöllun um átakið á Rás 1 mánudaginn 20. apríl 2009 í Samfélaginu í nærmynd

Umdæmi héraðsskjalasafna

Borði

Tengdu á okkur

Borði
Senda á Facebook
Borði
Félag héraðsskjalavarða á Íslandi

Heimasíður skjalasafna

Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Höfundarréttur © 2013 hs.bkdata.net. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.