Borði

Héraðsskjalasafn Árnesinga

Héraðsskjalasafn Árnesinga

Heimilisfang:
Sími:
Farsími:
Netföng:

Austurvegur 2, 800 Selfoss
482 1259
6186816
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Afgreiðslutími:
13 - 17 mánudaga og föstudaga, 10 - 17 þriðjudaga og fimmtudaga, miðvikudaga lokað

Héraðsskjalasafn Árnesinga var stofnað árið 1985. Umdæmi þess er Árborg, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Hveragerðisbær, Skeiða- og Gnúpverjahreppur og Sveitarfélagið Ölfus.

Sveitarfélögin voru 18 en eru nú átta. Sveitarfélagið Árborg var áður Stokkseyrarhreppur, Eyrarbakkahreppur, Sandvíkurhreppur og Selfosskaupstaður. Bláskógabyggð var áður Biskupstungnahreppur, Laugardalshreppur og Þingvallahreppur. Flóahreppur var áður Hraungerðishreppur, Villingaholtshreppur og Gaulverjabæjarhreppur. Grímsnes- og Grafningshreppur var áður Grímsneshreppur og Grafningshreppur. Hrunamannahreppur er óbreyttur. Hveragerðisbær var áður Hveragerðishreppur. Skeiða- og Gnúpverjahreppur var áður Skeiðahreppur og Gnúpverjahreppur. Sveitarfélagið Ölfus var áður Ölfushreppur og Selvogshreppur.

Upphaf héraðsskjalasafnsins má rekja til stofnunar áhugamannafélags um það árið 1982. Finnur Magnússon fór um héraðið á vegum félagsins sumarið 1985, safnaði skjölum og gerði skýrslur. Við safnið störfuðu þau Inga Lára Baldvinsdóttir og Erlingur Brynjólfsson til ársins 1990.

Héraðsskjalaverðir frá stofnun skjalasafnsins:

Björn Pálsson 1990-2009

Þorsteinn Tryggvi Másson 2009-

Starfandi sögufélag á safnsvæðinu:

Sögufélag Árnesinga.


Umdæmi héraðsskjalasafna

Borði

Tengdu á okkur

Borði
Senda á Facebook
Borði
Félag héraðsskjalavarða á Íslandi

Heimasíður skjalasafna

Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Höfundarréttur © 2013 hs.bkdata.net. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.