Borði

Héraðsskjalasafn Austfirðinga

Héraðsskjalasafn Austfirðinga

Heimilisfang:  
Sími:
Fax:
Netfang:
Veffang:
Afgreiðslutími:
Laufskógar 1, 700 Egilsstaðir
471 1417
471 1452
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
www.heraust.is/
12 - 18 mánudaga til föstudaga

Héraðsskjalasafn Austfirðinga var stofnað árið 1976 af sýslunefndum Norður- og Suður-Múlasýslna. Frá árinu 1992 hefur héraðsskjalasafnið verið rekið sem byggðasamlag í eigu sveitarfélaganna í Múlasýslum.

Umdæmi þess er Borgarfjarðarhreppur, Breiðdalshreppur, Djúpavogshreppur, Fjarðabyggð (sjá þó um Héraðsskjalasafn Neskaupstaðar), Fljótsdalshérað, Fljótsdalshreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður og Vopnafjarðarhreppur.

Sveitarfélögin voru 24 en eru nú átta. Djúpavogshreppur var áður Beruneshreppur, Búlandshreppur og Geithellnahreppur. Fjarðabyggð var áður Mjóafjarðarhreppur (Norðfjarðarhreppur og Neskaupstaður tilheyrðu héraðsskjalasafninu í Neskaupstað), Eskifjarðarkaupstaður, Helgustaðahreppur, Reyðarfjarðarhreppur, Fáskrúðsfjarðarhreppur, Búðahreppur og Stöðvarhreppur. Fljótsdalshérað var áður Jökuldalshreppur, Hlíðarhreppur, Tunguhreppur, Fellahreppur, Egilsstaðabær, Vallahreppur, Skriðdalshreppur, Eiðahreppur og Hjaltastaðahreppur. Hreppamörk Borgarfjarðarhrepps, Breiðdalshrepps, Fljótsdalshrepps, Seyðisfjarðarkaupstaðar og Vopnafjarðarhrepps eru óbreytt frá þeim tíma er héraðsskjalasafnið er stofnað.

Héraðsskjalaverðir frá stofnun skjalasafnsins:
Ármann Halldórsson 1976-1984
Sigurður Ó. Pálsson 1984-1996
Hrafnkell A. Jónsson 1996-2007
Hrafnkell Lárusson 2008-2013
Magnea Bára Stefánsdóttir 2013-

Starfandi sögufélag á safnsvæðinu:

Sögufélag Fáskrúðsfirðinga, formaður Friðmar Gunnarsson.

Umdæmi héraðsskjalasafna

Borði

Tengdu á okkur

Borði
Senda á Facebook
Borði
Félag héraðsskjalavarða á Íslandi

Heimasíður skjalasafna

Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Höfundarréttur © 2013 hs.bkdata.net. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.