Borði

Héraðsskjalasafn Kópavogs

 

Heimilisfang:  
Sími:
Fax:
Netfang:
Veffang:

Afgreiðslutími:
Digranesvegi 7, 200 Kópavogur
544 4710
544 2110
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
http://www.kopavogur.is/thjonusta/menning/sofn/heradsskjalasafn/
10 - 16 mánudaga til föstudaga 

Héraðsskjalasafn Kópavogs var stofnað árið 2000.

Umdæmi þess er Kópavogsbær.

Upphaf Héraðsskjalasafns Kópavogs má rekja til þess að Leo J.W. Ingason var ráðinn sem skjalavörður Kópavogskaupstaðar árið 1979.

Héraðsskjalaverðir frá stofnun skjalasafnsins:
Leo J.W. Ingason 2000-2005
Hrafn Sveinbjarnarson 2006-

Starfandi sögufélag á safnsvæðinu:
Sögufélag Kópavogs, formaður Þórður Guðmundsson

Veffang: http://vogur.is/

Héraðsskjalasafn Kópavogs gefur út Ársrit Héraðsskjalasafns Kópavogs.

Árið 2008 kom út fyrsta bindi þess sem nær til áranna 2006-2007. Annað bindi er í smíðum.

 Ársrit Héraðsskjalasafns Kópavogs 2006-2007
Kópavogi 2008
Útgefandi: Héraðsskjalasafn Kópavogs
Ritstjóri: Hrafn Sveinbjarnarson héraðsskjalavörður
ISSN 1670-7885
Verð: 5000 krónur

Efni fyrsta bindis (sjá nánar efnisyfirlit þess) eru skýrslur um starfsemi og sögu Héraðsskjalasafns Kópavogs frá stofnun þess árið 2000 til ársins 2007 auk útgáfu skráa yfir opinber skjöl og einkaskjöl í vörslu skjalasafnsins.

Að auki eru í ritinu greinar um listamanninn Wilhelm Ernst Beckmann eftir Hrafn Andrés Harðarson bæjarbókavörð og Kópavog á árunum 1681-1729 eftir Gunnar Marel Hinriksson sagnfræðing en þeirri grein fylgir útgáfa á stríðshjálparskýrslu Gullbringusýslu 1681 og kvikfjártalsskýrslu Seltjarnarneshrepps 1703.

Einnig eru í ritinu útgefnar fundargerðabækur Framfarafélagsins Kópavogs 1945-1955 og skjöl úr sögu þess en félagið kom því til leiðar að Kópavogur varð sjálfstætt sveitarfélag árið 1948. Félagið var merkileg og sérstæð hreyfing í íslenskri stjórnmálasögu en bannað var skv. félagslögunum að stjórnmál væru rædd á fundum þess.

Loks eru í ritinu fróðleiks- og leiðbeiningarkaflar um skjalavörslu sveitarfélaga. Ritið er prýtt rúmlega 60 myndum og er búið myndaskrá og ýtarlegu registri.

Umdæmi héraðsskjalasafna

Borði

Tengdu á okkur

Borði
Senda á Facebook
Borði
Félag héraðsskjalavarða á Íslandi

Heimasíður skjalasafna

Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Höfundarréttur © 2013 hs.bkdata.net. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.