Héraðsskjalasafn Kópavogs lokað vegna flutninga
Síðast uppfært: Föstudagur, 17. febrúar 2012 09:05 Fimmtudagur, 16. febrúar 2012 22:44
|
| Hillur að Hamraborg 1, 3. hæð eru nú tómar |
Frá og með föstudeginum 17. febrúar til miðvikudagsins 7. mars verður Héraðsskjalasafn Kópavogs lokað vegna flutninga.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda en í nýju húsnæði að Digranesvegi 7 verður öll aðstaða til afgreiðslu skjala og móttöku gesta mun betri en verið hefur.
Beri nauðsyn til má ná í héraðsskjalavörð í síma 6161522 meðan á lokuninni stendur.
Héraðsskjalavörður








