Borði

Pökkun skjala

Að jafnaði tíðkast nú að nota öskjur undir skjöl og er mikilvægt að þær séu úr vönduðum sýrulausum pappa og eftir atvikum með sýrumótvægi (buffer). Um þetta hafa verið gefnir út staðlar og önnur viðmið sem vert er að glöggva sig á. Endingargóðar og vandaðar umbúðir eru dýrari en þær sem lakari eru, en til lengri tíma litið þarf sjaldnar að skipta um þær. Hagkvæmara er að viðhafa langtímahugsun við kaup á umbúðum, vinnuafl við að skipta um umbúðir er ekki ókeypis.

Ástæða þess að öskjur eru notaðar, fremur en bögglar eins og áður fyrr, er að betur fer um skjölin, þau varðveitast betur í öskjum og auðveldara er að nýta skjölin, askja er aðgengilegri en böggull.

Þegar skjöl og bækur passa ekki í öskjur gerist það stundum að grípa þarf til gamalla aðferða skjalavarða frá því áður en öskjur komust í almenna notkun á skjalasöfnum.

Þegar lausum skjölum var pakkað í skjalaböggul, eða krossbandsböggul eins og þeir kölluðust á Þjóðskjalasafni Íslands voru tekin tvö sterk pappaspjöld örlitlu stærri í broti (um 5 mm út fyrir kant) en þau skjöl sem pakka átti, lögð efst og neðst í bunkann og utan um þetta var hnýtt með skjalahnúti.

Stundum voru höfð hliðarspjöld á hægri langhlið og aðra skammhlið pakkans til að hlífa innihaldinu við að skemmast þegar pakkinn væri dreginn út úr hillu.

Stundum voru spjöldin ein látin nægja, en þá safnaðist ryk í innihaldið, skárri frágangur var þegar pakkað var í pappírsumbúðir áður en spjöldin voru sett á. Stundum voru pappírsumbúðir látnar nægja einar sér og hnýtt beint utan um þær, en það gat haft í för með sér að skjölin í pakkanum skærust af bandinu. Sama gat komið fyrir spjöldin sem voru stundum styrkt með shirtingsálímingi á miðju allra hliða spjaldanna.
Stundum tíðkaðist að festa merkispjald á skammhlið pakkans sem var þá fast við efra spjaldið eða að hálfu smokrað undir það og letrað á innihaldslýsing, líkt og gert er á endann á skjalaöskjum nú.

Ætli menn að nota þessar aðferðir á ný er vert að gæta þess að nota umbúðapappír og spjöld sem samsvara kröfum til annarra umbúða (arka og askja) um sýruleysi, litheldni og styrkleika. Maskínupappír sá sem notaður var í pakka áður fyrr var oft eldsúr og sama má segja um pappaspjöldin. Súrar umbúðir (t.d. venjulegir pappakassar utan af vörum) valda á löngum tíma skaða á innihaldi sínu, skjölum og bókum.

H.S.

Umdæmi héraðsskjalasafna

Borði

Tengdu á okkur

Borði
Senda á Facebook
Borði
Félag héraðsskjalavarða á Íslandi

Heimasíður skjalasafna

Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Höfundarréttur © 2013 hs.bkdata.net. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.