Eins og vindurinn blæs... - dagskrá á Norræna skjaladeginum 2010
Félag héraðsskjalavarða á Íslandi verður með opið hús í Borgarskjalasafni, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, Reykjavík laugardaginn 13. nóvember 2010 frá kl. 13:00 til 17:00 undir kjörorðinu Eins og vindurinn blæs...
15 héraðsskjalasöfn taka þátt í opnu húsi með einum eða öðrum hætti. Boðið verður upp á áhugaverða fyrirlestra, sýningu á skjölum, ljósmyndasýningu frá héraðsskjalasöfnunum, starfsemi héraðsskjalasafnanna kynnt, kórtónleika, sögufélög kynna rit og mynddiska, barnakrókur þar sem börnin fá blöðru og litabók o.fl.
Fyrirlestar og uppákomur
- Kl. 13:00 Í jöklanna skjóli - myndbrot um horfna lífshætti í Skaftafellssýslum.
- Kl. 13:30 Setning sameiginlegs skjaladags héraðsskjalasafna.
- Kl. 13:35 Söngfélag Skaftfellinga syngur nokkur lög. Kórstjóri Friðrik Vignir Stefánsson.
- Kl. 14:00 Gunnar Hersveinn: Þjóðgildi Íslendinga.
- Kl. 14:30 Hrafn Sveinbjarnarson: Að lífið sé skjálfandi lítið gras. Börnin úr Hvammkoti og Kópavogslækurinn.
- Kl. 15:00 Svanhildur Bogadóttir: Einangrunin rofin. Skjalasöfn í fortíð, nútíð og framtíð.
- Kl. 15:30 Sævar Logi Ólafsson: Loftvarnir í Reykjavík.
- Kl. 16:00 Guðrún Nína Petersen: Fljúgandi furðuhlutir og skemmtileg ský.
- Kl. 16:30 Ragnhildur Bragadóttir: Lán er að hann þig fái... Um ástina í póstkortum og bónorðsbréf til ungrar Reykjavíkurfrauku um aldamótin 1900.
Ljósmyndasýning - 15 héraðsskjalasöfn leggja til ljósmyndir úr söfnum sínum og daglegri starfsemi. Oft segja myndir meira en þúsund orð og á undanförnum árum hefur fjöldi ljósmynda verið afhentur héraðsskjalasöfnunum. Mikil vinna er framundan við skráningu mynda og eru gestir hvattir til að leggja okkur lið við skráninguna.
- Borgarskjalasafn Reykjavíkur
- Héraðsskjalasafn Kópavogs
- Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar
- Héraðsskjalasafn Akraneskaupstaðar
- Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar
- Héraðsskjalasafn Ísafjarðar
- Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu
- Héraðsskjalasafn Skagfirðinga
- Héraðsskjalasafn Svarfdæla
- Héraðsskjalasafn Akureyrar
- Héraðsskjalasafn Austfirðinga
- Héraðsskjalasafn Neskaupstaðar
- Héraðsskjalasafn Austur-Skaftfellinga
- Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja
- Héraðsskjalasafn Árnesinga
Skjalasýning - Í sýningarkössum verða skjöl frá Héraðsskjalasafni Kópavogs, Héraðsskjalasafni Mosfellsbæjar, Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar, Héraðsskjalasafni Árnesinga og Borgarskjalasafni Reykjavíkur. Einnig verða sýnd ástarbréf úr einkaeigu.
Sögufélög - Sögufélagið, Sögufélag Borgfirðinga og Sögufélag Árnesinga kynna starfsemi sína. Skemmtilegar bækur á góðu verði.
Ættfræði - Ættfræðiþjónustan ORG verður á staðnum - ef þú vilt vita meira um afa og ömmu... .
Barnahorn - Í barnahorni gefst börnum kostur á að lita myndir og hengja upp á vegg meðan foreldrar skoða sýningar. Boðið verður upp á litabækur og blöðrur meðan birgðir endast. Tröllasögur lesnar upp fyrir þau börn sem þora.
Kaffihorn - Boðið upp á kaffi og meðlæti frá HP kökugerð og Nóa Síríus, eitthvað fyrir börnin líka.
Allir velkomnir - ókeypis aðgangur








