Heppnuð Hafnarferð
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 05. október 2010 10:24 Mánudagur, 04. október 2010 17:08
Héraðsskjalaverðir voru ánægðir með viðtökur heimamanna á Höfn í Hornafirði á fundi þeirra með Þjóðskjalasafnsmönnum 22. og 23. september sl. Sigurði Hannessyni héraðsskjalaverði á Höfn og öðrum starfsmönnum Menningarmiðstöðvarinnar Nýheima eru færðar þakkir fyrir gestrisni og glæsilega umgjörð.

Björg Erlingsdóttir forstöðumaður Menningarmiðstöðvarinnar
Nýheima kynnir héraðsskjalavörðum starfsemi menningarmiðstöðvarinnar.

Sigurður Hannesson héraðsskjalavörður í geymslu skjalasafnsins sem er til húsa í menningarmiðstöðinni.

Skjalaverðir bera saman bækur sínar í veðurblíðunni á Höfn.








