Borði

Skýrsla um kvenfélagaskjalasöfn

Skýrsla um kvenfélagaskjalasöfn

SkjalasÖfn kvenfélaga
og félaga kvenna
í héraðsskjalasöfnum á Íslandi
Skýrslur Félags héraðsskjalavarða á Íslandi I
Desember MMIX
Útgefandi: Félag héraðsskjalavarða
Samantekt og ritstjórn: Hrafn Sveinbjarnarson
Umbrot: Gunnar Marel Hinriksson
Efnisyfirlit
Inngangur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 5
1. Héraðsskjalasafn Austfirðinga . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 13
2. Héraðsskjalasafn Neskaupstaðar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 16
3. Héraðsskjalasafn Austur-Skaftafellssýslu . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 17
4. Héraðsskjalasafn Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga . . . . . . . . . . . . . . . . .19
5. Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 20
6. Héraðsskjalasafn Árnesinga . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 21
7. Héraðsskjalasafn Kópavogs . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 25
8. Borgarskjalasafn Reykjavíkur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 27
9. Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 30
10. Héraðsskjalasafn Akraneskaupstaðar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 31
11. Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 33
12. Héraðsskjalasafn Dalasýslu . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 36
13. Héraðsskjalasafn Ísfirðinga . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 37
14. Héraðsskjalasafn Vestur-Húnavatnssýslu . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 38
15. Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 40
16. Héraðsskjalasafn Skagfirðinga . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 43
17. Héraðsskjalasafn Siglufjarðar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 46
18. Héraðsskjalasafn Svarfdæla . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 47
19. Héraðsskjalasafnið á Akureyri . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 49
20. Héraðsskjalasafn Þingeyinga . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 55
21. Viðauki: Þjóðskjalasafn Íslands . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 58

Inngangur
Um átaksverkefni um skjöl kvenfélaga og félaga kvenna á vegum Félags héraðsskjalavarða á Íslandi
Héraðsskjalasöfn, skjöl og skjalavarsla
Á Íslandi starfa 20 héraðsskjalasöfn á vegum þeirra sveitarfélaga er að þeim standa. Þau starfa skv. lögum nr. 66/1985 um Þjóðskjalasafn Íslands og reglugerð nr. 283/1994 um héraðsskjalasöfn.
Héraðsskjalasöfnin gegna lykilhlutverki í skjalavörslu sveitarfélaga og stofnana þeirra, en þeim er skylt að afhenda öll skjöl sín til varðveislu viðeigandi héraðsskjalasafni.1 Einnig gegna þau lykilhlutverki við varðveislu og vörslu skjalasafna fyrirtækja, félaga og einstaklinga um land allt, hvert í sínu umdæmi.
Eðli héraðsskjalasafna er því að vaxa, því sífellt bætist við skjöl í þeirra vörslu og skyldur þeirra aukast í réttu hlutfalli við það. Tryggja verður aðgengi að skjölum þeim sem varðveitt eru, en jafnframt verður að tryggja persónuöryggi þeirra sem fjallað er um í skjölunum eins og lög standa til og siðareglur skjalavarða. Með þeirri fagmennsku sem aðeins er kostur á að byggja upp í opinberum skjalavörslustofnunum í lýðræðislegu, opnu og borgaralegu þjóðfélagi, er varsla skjalasafna, jafnt opinberra sem úr eigu einstaklinga, félagasamtaka og fyrirtækja, best tryggð. Valdmörk borgaralegs réttarríkis, virðing fyrir einkalífi manna og réttindum þeirra og að hafa rétt manna til skjala í hávegum eru hornsteinar þeirrar starfsemi sem fram fer á opinberum skjalasöfnum. Skjalavörslustofnanir verða að standa óháð dægurflugum og markaðslögmálum.
Stundum virðist litið á skjöl sem svo sjálfsögð að þau séu einhvern vegin alltaf fyrir hendi. Af sjálfsdáðum aðgengileg eftir dyntum, duttlungum og þörfum manna. Vegna slíkra ranghugmynda grípa
1 Gagnvart sveitarfélögum sem ekki standa að héraðsskjalasafni gegnir Þjóðskjalasafn Íslands hlutverki héraðsskjalasafns. Þau sveitarfélög sem svo er ástatt um eru: Árneshreppur, Bæjarhreppur, Kaldrananeshreppur, Reykhólahreppur, Strandabyggð, Tálknafjarðarhreppur, Vesturbyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Snæfellsbær, Stykkishólmsbær, Kjósarhreppur, Seltjarnarneskaupstaður, Garðabær, Grindavíkurbær, Hafnarfjarðarkaupstaður,
Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Álftanes, Sveitarfélagið Garður og Sveitarfélagið Vogar.
6
Inngangur
menn ósjaldan í tómt þegar finna á til eitthvað til að byggja á við sagnaritun eða rannsóknir.
Mikilvægustu skjöl glatast sem ómerkasta rusl ef andvaraleysi gagnvart mikilvægi skjalasafna og skjalavörslu fær að ríkja óáreitt við dagleg störf fólks. Meðvitund almennings um mikilvægi skjala og skjalavörslu er nauðsynleg forsenda réttarríkis og opins borgaralegs þjóðfélags.
Skjöl, skv. innihaldi sínu og því samhengi sem þau eru varðveitt í tryggja réttindi, hjálpa við að halda endurminningum óbrengluðum og eru efniviður sagnfræðinga og sagnaritara, með öllu því sem þessu fylgir, t.d. að vera innblástur listamönnum og margt fleira. Skjöl eru samofin menningu Íslendinga eins og annarra vestrænna menningarþjóða.
Átaksverkefni um skjalasöfn kvenfélaga og félaga kvenna
Á stofnfundi Félags héraðsskjalavarða á Íslandi 27. mars 2009 var tekin ákvörðun um að félagið skyldi standa fyrir átaksverkefnum um að taka skjalasöfn til varðveislu í héraðsskjalasöfnin, bæði til þess að skjölin skiluðu sér og til þess að vekja almenning til vitundar um mikilvægi opinberra skjalavörslustofnana og þess hlutverks þeirra að tryggja vörslu og aðgengi að skjölum.
Einn mikilvægur þáttur í menningarlífi Íslendinga er starfsemi félaga og samtaka kvenna.2 Slíkan félagsskap er að finna út um allt land og varð því að ráði að láta fyrsta átaksverkefnið um að hvetja til afhendinga skjalasafna snúast um hann. Verkefnið hófst 15. apríl 2009. Í fyrstu var áformað að ljúka átakinu formlega um miðjan ágúst

Umdæmi héraðsskjalasafna

Borði

Tengdu á okkur

Borði
Senda á Facebook
Borði
Félag héraðsskjalavarða á Íslandi

Heimasíður skjalasafna

Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Höfundarréttur © 2013 hs.bkdata.net. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.